Klukk!
Þar sem ég hef ekkert að gera þá gríp ég það fegins hendi þegar einhver klukkar alla þá sem lesa klukkið sitt..
núverandi tími: 19. nóvember 2005, kl 12.17.
núverandi föt: Belju “stjörnu” sokkar, buxur sem hægt er að breyta í hnébuxur (úber tæknó!), Svartur snoopy brjóstahaldar, bláar nærbrækur, og svört Bifrastar-hettupeys.
núverandi skap: Kaffi-hæper!
núverandi hár: Sítt, dökkbrúnt... slegið..
núverandi pirringur: próf!
núverandi lykt: Cindy Crawford.
núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: LÆRA!! Þ.e. læra skattarétt fyrir próf...
núverandi skartgripir: Gullkúlur í eyrunum, stál armband, 2 silfur hringar og Baby-G úr.
núverandi áhyggja: prófin
núverandi löngun: að vera búin í prófunum
núverandi ósk: að ná prófunum
núverandi farði: Enginn, ég er svo sæt að ég þarf ekki svoleiðis ;o)
núverandi eftirsjá: hmmmm að hafa haldið áfram í skóla!
núverandi vonbrigði: Að það er ekki nóg að sofa með bækurnar undir koddanum til að kunna allt!
núverandi skemmtun: Hmm...
núverandi ást: æ... Kisa er nottlega alltaf númer 1!
núverandi staður: Hrifla, Viðskiptaháskólinn á Bifröst, 311 Borgarnes
núverandi bók: öö, bók, sko, síðasta bók sem ég las í var Principles of Economics, veit allt um einkasölusamkeppni núna ;o)
núverandi bíómynd: sko, þessu má svara á ýmsa vegu.. síðasta bíómynd sem ég horfði á var Muriel’s wedding, síðasta bíómynd sem ég sá í bíó var In her shoes (með sömu leikkonu og í Muriel’s wedding!!), uppáhaldsbíómynd, þær eru frekar margar.. en svona all time favorite er Miss Congenialety...
núverandi íþrótt: HA?
núverandi tónlist: Öll tónlistin í tölvunni minni.. það eru nokkur gígabæt..
núverandi lag á heilanum: Ótrúlegt en satt þá er það bara ekki neitt!! Það gerist mjög sjaldan!
núverandi msn manneskjur: sko, það eru 99 á listanum mínum! Þar af tala ég reglulega við einhverja 30... of langt að telja það upp hér!
desktop mynd: Á þessari tölvu, bara windows hóllinn þarna.. var að formatta sko... Á hinni tölvunni, stjörnu mynd sem ég tók um daginn í Víðidalnum...
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: LÆRA! Og drekka kaffi :p oog kannski horfa á einn ER þátt, eða eitthvað...
núverandi manneskja sem ég er að forðast: hehehe
núverandi dót á veggnum: Dót á veggnum.. sko í herberginu mínu er bara 1 nagli og þar er mynd af kisu... Er reyndar með seríu á veggnum líka, hún er blá og glær...
Ég ætla bara að vera svo vinsamleg að klukka þá sem langar að gera þetta... ;) Sunna, þú ert ein af þeim...
hehehe, nei geri það ekki.. bara stundum.. og þá verð ég hæper ;oþ