Blogg dagsins
Jú sæl!
Jæja, ætli það sé ekki rétt að blogga sem snöggvast. Það er svosem ekki mikið að gerast í mínu lífi enda renna allar vikur saman í eitt þar sem þær eru allar eins!
Við Sigrún erum samt gríðarlega duglegar og byrjaðar að æfa okkur eftir bootcamp bókinni, erum búnar að fara einu sinni. Ætlum aftur á morgun.
Svo er byrjaður fótbolti hérna á Hvammstanganum. Fullt af hressum stelpum að sparka á milli sín bolta. Reyndar þá held ég að Sveinbjörgu sé eitthvað illa við mig, hún er alltaf að hlaupa á mig eða sparka í mig boltanum! hehehe
Annars þá er það nýjasta nýtt í fréttum að ég og mútter og Addi vorum að panta okkur útlandaferð! Já og hana nú og hafiði það! Þetta verður í annað skipti sem ég fer í sólarlandaferð og ég hef aldrei farið í jafn langt frí erlendis og aldrei farið jafn langt fyrst út í það er farið! Þetta er æsispennandi, reyndar er flugið ekkert rosa spennandi, tekur 10-11 tíma! ooog núna eru sennilega einhverjir orðnir forvitnir um hvert skal haldið, jú hvorki meira né minna en til Karabíska hafsins! Ætlum semsagt að vera í 2 vikur um jól og áramót í Dóminíska lýðveldinu!
Hér er svo smá kort, svona til að sýna hvar þetta er (Í miðjunni, fjólublátt, DOM. REP. - stærra ef maður klikkar á myndina):
Já og svo ein svona mynd af strönd þarna ;)
En já, núna er ég hætt að hugsa um þetta þangað til í svona október! (alltof alltof lang til jóla!)
Annars er svosem fátt nýtt, jú það eru komnar yfir 100 myndir á flickr myndasíðuna mína
Smá sýnishorn
Jæja, ég er farin að baka pizzu!
Ciao
svo býður maður spenntur að sjá myndefni úr ferðunum okkar :)
Nei Hrafnhildur, æ lovvv jú, það er bara betra að vera með mér í liði ;)
Eruð þið alveg viti ykkar fjær, þarna morar allt í mannætum og köngulóm
Ómægad!!!! Hrafnhildur!!! Við erum að fara til Dóminíska Lýðveldisins eftir 6 mánuði og 15 daga!!!!! Ég er btw mjöööög róleg ;P
found you by accident, looking for a map of the
Carribean [????] I don't understand that connection.
Finally got to your flicker pages. great photos. I totally enjoyed them.
thanks