Blogg dagsins
Já, Hvammstangi. Þetta er skondinn staður. Það búa fáir hérna. Það er ódýrt að búa hérna. Og það er kaupfélag hérna! Mér finnst alltaf gaman þegar ég fatta það að ég er farin að bíða spennt eftir föstudögum því þá kemur KANNSKI uppáhaldsbrauðið mitt frá bakaríinu í kaupfélagið, eða þegar ég fer spennt í kaupfélagið á fimmtudögum af því að þá er búðin full af góðgæti fyrir helgina! Og þegar ég fer í búiðina á mánudögum og það er ekkert til út af því að það hefur allt verið rifið úr hillunum á föstudeginum áður. Nú eða ef mig vantar eitthvað á sunnudegi og það er lokað..
Já, þetta fær mig til að hugsa um hvernig þetta var í gamla daga. Ég veit hreinlega ekki hvar ég væri ef árið væri 1907! úff! Í fyrsta lagi þá væri ég sennilega ekki að blogga! Ætli ég myndi ekki búa í torfkofa með 7 öðrum og eyða deginum í að prjóna og stoppa í sokka! Væri sennilega ekki bústýra heldur vinnukona! Svo til hátíðarbrigða þá færi ég á hestbaki á næsta bæ svona einu sinni í mánuði til að hitta hinar vinnukonurnar og spjalla yfir kaffibolla. Yes! spennandi!
Það er ótrúleg þróunin sem hefur orðið síðustu hundrað árin. Fólk færðist úr torfkofum í almennileg hús. Bíllinn í almannaeign, tölvan, sjónvarpið, rafmagn, síminn, útvarpið og allt hitt heila klabbið! Alveg magnað hvað hefur gerst margt á síðustu hundrað árum miðað við hvað gerðist hundrað árin á undan því, og hundrað árin á undan því!
Anyway, þá hef ég ekki gert margt undanfarnar vikur, aðalega búin að vera bara í vinnunni... Skellti mér reyndar á ball í Víðihlíð miðvikudaginn fyrir páska, mátti til með að fara þar sem ég fór síðast á ball í Víðihlíð í október 2005!
Jú svo fór ég í fjallgöngu á föstudaginn langa. Hún gerði föstudaginn langa virkilega langan! Hélt ég ætti ekki afturkvæmt úr fjallinu! Fór semsagt með mömmu og Adda í það sem átti að verða létt þriggja tíma ganga upp á Ásgeirsárhlass en endaði í 6 tíma stífri göngu! Og það er satt sem þeir segja, það er kalt á toppnum!! brrr
Svoooo af því að ég var nú að tala um tækni þá er hérna ein mynd af Berghildi Ösp grallara, tók hana með símanum mínum ;)
Það eru nú engin 100 ár síðan ég var krakki og þá fékkst sko bara franskbrauð og rúgbrauð í kaupfélaginu :-) Flott mynd af Berghildi
ég hefði verið til í að sjá þig uppi 1907;) góð mynd af berghildi;)
hæhæ ég veit ekki hvernig þetta væri allt þarna 1900 og eitthvað en ég væri nú samt alveg til í að sjá alla svoleiðis:-p en góð mynd af Berghildi hún er alltaf sama snúllan.
En ég hefði verið til í að sjá þig uppá Ásgeirsárhlassinu (eða hvað það nú heitir, og hvar það nú er) í öllum þessum kulda hehehe :)
úff ég vil nú ekki rifja það upp hvernig var að búa á Hvammstanga...nú og alls ekki hvernig það var að vera tölvu og netlaus!! ég meina hvernig var hægt að lifa af í moldarkofa!! ónei, ég vildi sko ekki skipta!