Jólakveðja
Þar sem ég er ekki sú duglegasta að senda jólakort þá langar mig bara að senda jólakveðju hér.
Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Með þökk fyrir allt gamalt og gott.
Jólakveðjur
Hrafnhildur
Þar sem ég er ekki sú duglegasta að senda jólakort þá langar mig bara að senda jólakveðju hér.
Ég óska öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Með þökk fyrir allt gamalt og gott.
Jólakveðjur
Hrafnhildur
Föndraði hérna smá quiz.. svona bara til að vita hverjir eru "up to date" :P
Prófið má nálgast Hér
Slow and Steady |
Your friends see you as painstaking and fussy. They see you as very cautious, extremely careful, a slow and steady plodder. It'd really surprise them if you ever did something impulsively or on the spur of the moment. They expect you to examine everything carefully from every angle and then usually decide against it. |
Það var ca árið 1989 og ég var u.þ.b. 5 ára. Ég var á Sólbakka, í góðu yfirlæti eins og venjulega hjá ömmu og afa. Ég man nú ekki nákvæmlega atburðarrásina en allavega atvikaðist það þannig að amma gaf mér þessa forláta styttu, portret af kvenmanni sem var með bleikum ámáluðum hatti og bleikum fjaðratrefli. Mér fannst þessi stytta að vonum æðislega flott! Einhverra hluta vegna fór það svo að amma sagði við mig að þetta væri "svona tombólustytta" og þar sem ég hef nú aldrei verið mikið fyrir það að spurja nákvæmlega út í hlutina sagði ég bara "jájá". Það sem amma vissi hinsvegar ekki var að ég hafði hreinilega ekki hugmynd um hvað tombóla var! Því fór ég nú að skoða styttuna í von um að komast að því hvers vegna þetta væri "tombólustytta". Það eina sem mér fannst athugavert við hana sem gæti bent til þess að vera "tombóla" var að það var gat neðan á styttunni og hún var hol að innan. Olli þessi styttugjöf því miklum misskilningi hjá mér í mörg ár eftir þetta þar sem ég var viss um að tombólustyttur væru þær styttur sem væru með gat á botninum.
Staður: Bifröst
Stund: 2000-2001
Þessi mynd er tekin í bústaðnum sem mamma bjó í fyrsta veturinn sinn á Bifröst. Ég var nýbúin að eignast þennan líka forláta þrífót og varð að prufa hann. Ég þurfti að sjálfsögðu að velja myndefnið af kostgæfni og þar sem ég á gríðarlega tæknilega myndavél, Nikon F60 sem hægt er að stilla á tíma, þá var brugðið á það ráð að taka sjálfsmynd. Mamma sat sumsé í sófanum á meðan ég stillti græjuna og svo hljóp ég og settist við hliðina á henni. Við vorum svo mjög alvarlegar yfir því hvort að þetta myndi virka. En eins og sjá má þá tókst myndatakan alveg ágætlega. Mig langar samt sérstaklega að benda á köflóttu buxurnar mínar. Þær eru flottar!