<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Rugl dagsins

Jæja, mér fannst alveg tilefni til að blogga núna. Þannig er mál með vexti að ég byrjaði á námskeiði í dag. Nei, þetta er hvorki sauma- né prjónanámskeið og þetta er ekkert tölvutengt! Þetta er líkamsræktarnámskeið! (já, ég er komin í líkamsrækt!) Og þetta er sko ekkert aumingjalegt heldur skráði ég mig í bootcamp! Fyrir þá sem ekki vita hvað bootcamp er þá er hér stutt lýsing tekin af heimasíðu þeirra www.bootcamp.is:

Boot Camp er 6 vikna námskeið sem mun koma þér í besta form lífs þíns. Boot Camp vísar til grunnþjálfunar hermanna sem er ein strangasta og besta líkamsþjálfun sem völ er á. Á námskeiðinu reynir þú á þolmörk líkamans og ferð að ystu mörkum þess sem þú taldir þig mögulega geta... og umfram það.

Já góðan daginn! og ekki nóg með að þetta sé herþjálfun heldur er ég líka í tímum frá 7.30-8.30 þrisvar í viku! Ég fór semsagt í fyrsta tíman í morgun og ég fór ekki einu sinni, heldur tvisvar framá klósett vegna þess að ég hélt að kvöldmaturinn síðan í gær væri á leiðinni upp! (svona mikilli þjálfun er stelpan í!) En ég lifði þetta nú af, þrátt fyrir að hafa t.d. þúrft að berja boxpúða 500 sinnum! Ég hef fulla trú á þessu og geri ráð fyrir að vera komin í hörkuform eftir 4 vikur (já, ég ætla að vera allar 4 vikurnar, ég er búin að borga fyrir þær!). En svona lesendum til fróðleiks þá ætla ég að setja hérna inn 2 myndir sem sýna hvernig ég verð að þessum 4 viknum liðnum! Enjoy!



 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

Þessar myndir eru ÓGEÐ!!!!

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

hehehe... þessi neðri er ekki alveg að gera sig, var að spá hvort þetta væri fram eða afturhluti ;)

 
 
Blogger Hrafnhildur Says:

já þessi seinni er sko þegar ég verð búin að vera í bransanum doldið lengi... En takið samt eftir svipnum, þetta er sko zoolander svipurinn minn :p

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

Svaka flott, eða ekki. Ekki alveg viss um að þetta sé rétta útlitið fyrir þig. En hver veit, maður gætu nú vanist þessu ef þú ætlar að fara að líta svona út

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

var að borða og missti matarlystina þegar ég sá þetta
ugh +o( birna

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

hva, voðalega post-modernískt fashionhyggja er þetta! er ekki innri maðurinn sem skiptir máli? Sammála Möggu, ogm geðgt flott sko;)

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

jedúdda mía og jemin eini þetta er ekkert smá!! ég held samt að ég kjósi að vera með vöðvana í smá afslöppun heldur en að vita ekki hvor ég væri kona eða karl.. en samt "MJÖG HOT" hehe.. en hlakka til að sjá þig vöðvabúnt næst þegar að þú lætur sjá þig á norðurslóðum .. ;P

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic