<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Blogg dagsins

Jæja, mér fannst komin tími til að blogga. Var nú bara að vinna í síðustu viku og svona og svo kom mútt norður um helgina. Ég, mútter, Þorbjörg, Hákon, Ásta og Konni fórum á hestbak í gær og ég hef ekki farið á hestbak síðan um stóðréttir, tók nú samt stökksprett og skeiðsprett, svaðalegt stuð, held ég verði að fara að gera meira af þessu ;) - sérstaklega líka til að ég fái ekki svona rasssæri aftur :p

Annars þá átti besta vinkona mín stórafmæli á laugardaginn. Hún heitir Hvítloppa og varð 15 ára gömul. Í tilefni dagsins þá klappaði ég henni aðeins meira en venjulega og knúsaði hana svo pínkulítið. Ég semsagt fékk hana í afmælisgjöf þegar ég var 7 ára og við höfum verið óaðskiljanlegar síðan. Eða svona.. hún móðgaðist held ég pínkulítið út í mig þegar ég togaði hana á skottinu undan sófanum og svo aftur þegar ég setti hana útí poll... held reyndar að hún sé búin að fyrirgefa mér. Þrátt fyrir háan aldur er hún ennþá í fullu fjöri, uppáhalds áhugamál hennar er að leggja sig og borða mat og svo að láta klappa sér. Til gamans þá læt ég fylgja hérna með tvær myndir af hefðarfrúnni.



 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

Hvað er að þér, ég eeeelska rassæri eftir þeysireið..... ;P

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

Takk fyrir góðan reiðtúr, þetta var nokkuð gaman, endurtökum þetta við tækifæri :)

kv Þorbjörg

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

Hey, ekki vera með þetta væl. það kommenta allavega fleyri hjá þér heldur en hjá mér!

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic