<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Blogg dagsins - þá, nú, bráðum

Jess... já... semsagt...

Keypti mér bíl um daginn! Hann er flottur, gellublár Yaris, árgerð 2006 (nýja lookið). Ég er búin að keyra 3.000km á honum, er búin að eiga hann í mánuð!

Ég er semsagt búin að keyra að sunnan og norður, á akureyri og til baka, 2 ferðir á Sauðárkrók, til Reykjavíkur og baka, suður yfir Holtavörðuheiði og til baka, hring í Vatnsdalnum, margar ferðir til ömmu og afa og nokkra rúnta á Hvammstanga.

Unglist var um daginn.. Ég var í "nefndinni", þetta tókst bara alveg ágætlega hjá okkur held ég! KK í Borgarvirki, Sniglabandið með ball og svona, voða ágætt bara.

Nú svo eignuðust amma og afi afkomanda nr. eitthvað mikið.. Barnabarn nr. tuttugu og eitthvað! Gullfalleg stúlka sem Sirrý og Júlíus eignuðust. Ég kíkti á hana á sunnudaginn og tók að sjálfsögðu mynd.

litla

En talandi um Ömmu og Afa, þau eiga brúðkaupsafmæli núna eftir nokkra daga, hvorki minna né meira en gullbrúðkaup! Að því tilefni verður partý í fellaskála á laugardag ;)

Það sem er frammundan.. Jú það eru ekki nema 11 dagar í það að ég verði 23. ára! Ef einhverjum langar að gefa mér afmælisgjöf þá langar mig í ýmislegt, Nikon 50mm f1.8 linsu, Sigma 30mm f1.4 linsu, Manfrotto 190XProb þrífót + haus, einhverja góða macro linsu og svo vantar mig bráðnauðsynlega svona eins og eitt stk 22-24" lcd tölvuskjá sem er góður í myndvinnslu ;)

Helgina eftir að ég á afmæli eru svo Noruh Jones tónleikarnir... Ég er á 2. bekk í sæmilegu sæti... Er einhver að fara annar en ég? ég veit ekki um neinn sem ætlar :s

Já og svo koma auðvitað réttir og svoleiðis..

Svo eru bara ca 126 dagar þangað til við förum til Dóminíska lýðveldisins :D

Ein mynd af Hvítserk svona í lokin

Hvítserkur

 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

NOH!!! Ég sem var búin að afskrifa þig úr bloggheiminum ;P en já, 126 dagar, þetta styttist óðum. Og GMG! Ég á ENGAR stuttbuxur!!!!

 
 
Blogger Unknown Says:

þú þyrftir að blogga oftar kjáni..

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

já ég var næstum því búin að afskrifa þig úr bloggheimnum líka..

en knúsaðu ömmu og afa frá mér.. vildi að ég gæti komið og fagnað með ykkur öllum...

annars er bara 1 dagur í Ítalíu hjá mér.. og Sunna ég á heldur engar stuttbuxur!!

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic