Blogg dagsins
Það er komið vor! Ég er vakin á hverjum morgni, tja eða frekar nóttu, klukkan ca 4 við þrastarsöng! Ég sofna nú alltaf aftur en vakna svo við rjúpnarop og hrossagaukshnegg um 8!
Ég skrapp á Sólbakka í gær og skoðaði þessa voða rosa ofsa krúttímúsírúsílegu kettlinga.
Annars ef einhvern vantar kött þá eru kettlingar á leiðinni hjá Lobbu kisunni þeirra mömmu og Adda. Þeir verða örugglega voða krúttlegir, enda af norskum skógarkattaættum :)
Skrítið, þrestirnir hérna vakna alveg á sama tíma og hjá þér, ætli þetta sé lögboðinn fótaferðatími þrasta :-)
mútt...
Ekkert smá sæt mynd;) mig langar í kettling;)