Rugl dagsins - niðurstaða
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu, eftir langa umhugsun, að ég sé frekar leiðinleg manneskja. Þessa niðurstöðu byggi ég á þeirri staðreynd að ég hef ALDREI neitt að segja! Ég hef til dæmis nagað mig í handabökin síðustu 2 sólarhringana við það að upphugsa eitthvað til að skirfa á bloggið en mér hefur hreinlega ekki dottið neitt í hug! Ýmislegt hefur nú komið uppí hugan, til dæmis þá datt mér í hug að skrifa um einstaklega skemmtilega sumarbústaðarferð sem ég fór í á föstudaginn með konunum í SPRON í Mjódd, en einhvernvegin þá bjóst ég ekki alveg við að það yrði eitthvað gaman að lesa það..
Einnig datt mér í hug að segja frá góðum bröndurum sem okkur Sunnu hefur dottið í hug, t.d. þegar ég sagði ekki skilja ákveðna manneskju sem heitir rammíslensku nafni og sunna sagði "nú, er hún útlensk?" Nú eða þegar ég sagði "nej tak, jeg er bara ad skoda" í verslun á Strikinu. En þessa brandara verður eiginlega að segja, þeir eru bara ekki jafn fyndnir í rituðu máli.
Mér flaug einnig í hug að segja frá týpum af fólki sem fer í taugarnar á mér, t.d. ákveðinni manneskju sem smjattar ferlega mikið, fólki sem er tilætlunarsamt og fólki sem mætir 2 mínútum fyrir lokun t.d. í verslun eða banka og er að "dunda" sér. Mér fannst þetta hinsvegar svo neikvæð umræða eitthvað að ég ákvað að sleppa henni, fæ líka smá samviskubit yfir því að segja frá svona fólki því ég er alltaf með einhvern ákveðinn í huga sem á svo sannarlega ekki skilið að vera úthúðað á bloggsíðum, jafnvel þó að engin nöfn séu nefnd!
Að lokum þá datt mér í hug að skrifa um mig, þ.e. ég um mig frá mér til mín! Hefði til dæmis getað sagt frá því að ÉG er hætt í mjódd og farin að vinna í Ármúlanum en verð bara hérna í viku og fer svo í Spöngina. Líka að ÉG er búin að skrá MIG á annað námskeið í bootcamp, þannig að ÉG verð kannski orðin flott eftir 7 vikur. Einnig hefði ég getað skrifað um það að ÉG er algjör auli vegna þess að ÉG fór í ljós í gær og ÉG brann svo hrikalega að ÉG er á litinn eins og tómatur! Og að þetta er nú ekki gott vegna þess að ÉG er að fara á árshátíð hjá Spron á laugardaginn!
En svona er þetta nú, ekkert af þessu fannst mér nógu skemmtilegt eða áhugavert til að setja á bloggið! Ég verð sennilega bara að halda áfram að vera leiðinleg!
Skál fyrir því
Hvaða neikvæðni er þetta??!!!! Mér finnst þú alltaf fyndin þegar þú ert með mér ;) (nema þegar þú segir öllum að ég hafi stunið þig af á djamminu og af hverju...!!!)
þú ert rugluð.... þú hefur pott þétt eitthvað að segja.... villt bara ekki segja mér það.... hehehe...
Ég get sagt þér það að bruninn verður farinn fyrir föstudag.....
Mér fannst þetta gott blogg hjá þér, þú þarft bara að skrifa oftar, ég ætti kannski bara líka að fara að blogga. Reyndar verst að ég hef minna að segja en þú, en kannski maður prófi ef einhver skorar á mann :)
Ekki tók ég eftir brunanum, kannski af því að ég er alltaf á hundrað þegar ég loksins get verið í vinnunni.
hehe já kolla mín, ég er nú líka aðalega brunnin á stöðum sem sjást nú ekkert :p
En Þorbjörg, ég skora bara hér með á þig að fara að blogga!
hehehe jú jú þú hefur heilmikið að segja og ert alls ekki leiðinleg... enda komin af mjög skemmtilegri fjölskyldu..
og sunna.. "að þú hafir STUNIÐ hana af djamminu!!!???" hhmmm do I dare to ask?? heheheh
hlakka til að sjá þig snúllan mín.. góða skemmtun á árshátíðinni við skálum saman á morgun. ég í Valencia og þú í Reykjavík city...
Hahahaha þetta átti náttúrulega að vera "stungið" af!! Hehehehehe....
Þetta var ekkert smá skemmtilegt. Hermi vonandi eftir þessu þegar ég verð leiðinlegur. Sem gerist mjög oft.