<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Blogg kvöldsins - ég ætti að vera löngu farin að sofa!

Jebb.. Ég var að reyna að flytja í dag.. ég er búin að fara með helling af drasli, samt er hellingur eftir hérna en einhverra hluta vegna þá er samt ekkert fleira sem ég get farið með strax! :s Ég er semsagt búin að fara með flest þetta litla (föt, myndir, bækur...) en á eftir að fara með öll húsgögn.. Svo á ég reyndar eiginlega eftir að ákveða hvað ég ætla að hafa með mér í Brún og hvað ekki :s Hvort ég taki svörtu hilluna eða litlu hilluna, hvort ég komi tölvuborðinu fyrir í herberginu og hvað ég eigi þá að gera við tölvuna ef borðið kemst ekki fyrir... Svo er það spurningin hvað ég eigi að gera við ísskápinn, á ég að geyma hann eða selja (vantar þig ísskáp? Góður ísskápur sem ég er til í að selja á góðu verði ;)
úff.. það er alltof mikið vesen að flytja!

Allavega, ég er officially orðin 23... hundgömul alveg hreint! (næstum..) Er búin að fá eitt af óskalistanum síðan í síðasta bloggi ;) Móðir mín var svo elskuleg að hún gaf mér nikon 50mm f1.8 linsu (ég semsagt fann linsuna notaða á netinu og tilkynnti svo mútter hvert hún ætti að sækja hana og hvað hún ætti að taka með sér mikinn pening :p). Annars gerði ég svosem ekki margt í tilefni dagsins, byrjaði jú á að vaska upp.. geri það bara til hátíðabrygða sko... Nú, svo fór ég á hestbak með Sigrúnu, Munda, Rögnu, Ingveldi, Ástu, Óla og Stínu. Það var mjög gaman! Eftir reiðtúrinn var svo boðið uppá vöfflur og með því í Böðvarshólum (ég vissi að ég gæti treyst á að fá afmæliskaffi þar ;) Svo fór ég heim og ætlaði að halda áfram að flytja.. einhverra hluta vegna þá endaði ég uppí rúmmi að horfa á vídjó.. skrítið. Endaði svo kvöldið á að kíkja í smá kökur og snakk hjá Sigrúnu og Sveinbjörgu. Afskaplega fínt.

Í dag er ég svo búin að vera að baka! Við Betty Crocker vinkona mín erum afskaplega góðar saman ;) Það er a.m.k. gott að geta kennt henni um ef kökurnar eru vondar :p

Jebb.. jámm.. Svo eru það bara Noruh Jones tónleikar um næstu helgi.. vei

Að lokum er svo ein mynd úr nýju linsunni.. Fyrirsætan er Berghildur Ösp, tók þessa mynd uppá heiði í gullbrúðkaupspartýinu hjá ömmu og afa (það btw var mjög gaman þar! Mikið stuð á fólki og gaman að geta loksins séð hvernig þetta lýtur út þarna! Mig langar að fara aftur og skoða meira ;)

Berghildur

Adios!

 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

sael vinan!! Til hamo med afmaelid um daginn!

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

hey.. þú taldir ekki með heila nikon myndavél, tvær linsur og tösku, já og flass í upptalningunni yfir afmælisgjafir (ég er smá móðguð) eða þannig sko.... frábær mynd af Berghildi skvísu

 
 
Blogger Hrafnhildur Says:

ahh já.. ég var sko bara að tala um það sem var á listanum sjáðu til ;) Annars var þetta mjög flott gjöf frá þér! :)
og fyrst við erum að telja upp gjafir þá fékk ég sko líka rósavínflösku frá Sveinbjörgu :)

 
 
Blogger Unknown Says:

þú ert gömul :P til hamingju með ellina um daginn!

 
 
Blogger pallilitli Says:

Já til hamingju með daginn..... um daginn...
En hvert ertu að flytja og afhverju?

 
 
Blogger Sigrún Says:

Ok það er kominn tími til að hætta þessum blogg óáhuga

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic