Rugl dagsins 2
Hér á eftir eru 10 góð ráð ef þér leiðist í búðum.
1. Náðu þér í 24 kassa af smokkum og dreifðu þeim handahófskennt í
innkaupakerrur annarra þegar þeir eru ekki að horfa.
2. Stilltu allar verkjaraklukkurnar í raftækjadeildinni þannig að þær
hringja á 5 mínútna fresti
3. Búðu til slóð með tómatsafa á gólfið alveg að klósettinu.
4. Settu M&M í útsölurekka
5. Þegar starfsmaður snýr sér að þér og býður þér aðstoð, farðu þá að
grenja og segðu: ,,Af hverju getur fólk aldrei látið mig í friði? Hvað hef
ég gert þér?"
6. Horfðu beint í öryggismyndavélina og notaðu hana eins og spegil á meðan
þú borar í nefið.
7. Þegar þú handleikur beitta hnífa í búsáhaldadeildinni spurðu þá
starfsmann hvort geðlyf séu seld í búðinni
8. Feldu þig í fataslám og þegar fólk skoðar föt, stökktu þá fram og segðu
hátt ,,Veldu mig.. veldu mig....."
9. Þegar tilkynning hefur heyrst í hátalarakerfinu taktu þá um höfuðið og
hrópaðu ,,Oh þessar raddir aftur..."
10. Farðu inn í mátunarklefa og kallaðu hátt eftir smátíma: ,,Hey, það
vantar klósettpappír hér!"
Kræst.... Hver ól þig eiginlega upp? ;)
hehe, spurning sko... en svo má líka bæta við að það er hægt að fara og láta kalla einhvern upp í kallkerfinu og bíða svo heillengi og vera að deyja úr áhyggjum en segja svo allt í einu "nei bíddu, ég kom ein í búðina!"
ahahahah snilld... en minntu mig samt á að fara ekkert í búðir með þér...
Sammála Siggu, fer ekki með þér oftar í búðir :)
Ahahahahaha vá takk þú bjargaðir deginum hjá mér :) ætla svo sannarlega að stela þessu ;) en já með föstudaginn þá var ég að muna að ég er á dansnámskeiði til fimm þannig að ég fer ekkert svona snemma eins og ég hélt. Segi stundum bara eitthvað útí loftið án þess að hugsa :)
já steldu þessu endilega Ellen, þetta er hvort eð er stolið :p
Hahahahaha!!!!!!!!!!!! Þetta er nú bara það sem ég geri á þriðjudögum ;p
Ja hér Sunna... ég hélt að Hrafnhildur væri svona illa upp alin en nú sé ég hvaðan áhrifin koma thihi... ;)
Hahahahaha!!!!! Já ég hef mjög slæm áhrif á Hrafnhildi ;p Ég er spillir ;)
Vá, ég hló upphátt. Meira! Meira! Meira! :D