<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://draft.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Rugl dagsins - öpdeit

Jæja jæja jæja, núna er semsagt Reykjavíkurkaflanum lokið og ég er komin heim í heiðardalinn.. (eða eitthvað..) Er semsagt flutt til ömmu og afa og læt þau að sjálfsögðu dekra við mig, t.d. þá er amma búin að hafa mat sem mig langar í síðustu 2 kvöld, fyrst fiskibollur úr dós í karrýsósu og svo kjöt í karrý og mikið af hrísgrjónum (já mér finnst karrý doldið gott) og svo ætla ég að ráðast í pizzu-gerð annaðkvöld, langt síðan ég hef fengið almennilega pizzu :p.

Ég er að vísu ekki búin að koma mér fyrir og ég sé framá að ég verði kannski búin að því þegar ég flyt aftur, komst að því að ég á miklu meira drasl en ég hélt, herbergið mitt er í augnablikinu fullt af pokum og kössum og drasli og gangurinn fyrir framan líka, rétt smá gangvegur til að komast inn og uppí rúm.

Kisa er yfir sig hamingjusöm yfir því að ég sé komin, hún vissi alveg uppá hár hvað klukkan sló þegar ég byrjaði að bera inn drasl (eins og hún veit hvað ég er að gera þegar ég byrja að pakka, þá reynir hún iðulega sitt besta til að hrinda niður hlutum eða leggjast ofaná það sem ég er að reyna að setja í töskur). Hún semsagt eltir mig á röndum, kvartar yfir því ef ég loka inná klósett og sefur inni hjá mér allar nætur. Hún bíður líka spennt fyrir utan baðherbergið þegar ég fer í sturtu - ekki slæmt að vera svona dáð! :p

Ég ákvað að nýta síðasta kvöldið mitt í Reykjavík vel og fór því á djammið. Katý kom alla leið frá Bifröst til að koma með mér og við byrjuðum nú á því að fara í Kringluna og kaupa okkur skó, geðveika gellu skó btw! Á leiðinni á djammið kom ég við hjá Sunnu, varð að kíkja á partýið hjá henni, sjá hvort hún væri nokkuð að haga sér ósæmilega - sem hún var! Sumir voru semsagt drukknari en aðrir og stóðu varla í lappirnar og voru með ástarjátningar!! (jájá, gott að vera búin að gera þvílíkt grín af mér fyrir þetta eina skipti sem ég varð það drukkin að vera með svoleiðis). En allavega svo fórum við ásamt Katrínu og Ernu niðrí bæ. Ég er farin að hallast að því að ég sé frekar leiðinlegur félagsskapur því við vorum varla komnar niðrí bæ þegar Katý ákvað að yfirgefa fjörið. Svo frekar snemma (svona milli 2 og 3) þá yfirgáfu Katrín og Erna mig þannig að ég var bara tótalí alón! Eeen ég fann mér að sjálfsögðu bara fólk sem ég þekkti, reyndar sama fólk og síðast þegar ég var skilin svona eftir ein! hehe þannig að það rættist alveg úr þessu. Ég fór ekki heim fyrr en hálf 7 og varð fyrir þeirri skemmtilegu reynslu í leigubílaröðinni að einhver gaur reyndi við mig, hann notaði reyndar mest hallærislegustu pikk-öp línu ever, horfði, nei starði í augun á mér og sagði "hvernig eru augun þín eiginlega á litin?? Ég er búin að vera að horfa á þig geðveikt lengi og velta þessu fyrir mér!" Ég komst að því að þessi drengur er greinilega litblindur þar sem hann hélt því fram að þau væru gul og blá! Sem betur fer var komið að mér í leigubílaröðinni þannig að ég þurfti ekki að standa í einhverju þrasi um þetta :p

Hmm, núna eru sennilega þessir 5 sem lesa bloggið mitt löngu hættir að lesa, en ég er ekki alveg hætt.. Ætla bara að segja að það er stór djamm-helgi framundan! Sumarhátið SPRON á föstudag og svo innflutnings/júróvisjon partý á laugardag! nóg að gera! hehe

Jamm, bara eitt svo að lokum, svona í tilefni af júróvisjon - Áfram Ísland!!

Lifið heil

 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

Ég reyndi þó :)

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

hehe.... en skemmtu þér vel í sveitinni skvíz :)

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

Sko, ég hegðaði mér ekkert ósæmilega!!! Ég var bláedrú!! Og svona btw þá varst þér ekkert sú eina sem fékk ástarjátningu frá mér ;P

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

já það verður mikið gaman næstu helgi.. og sunna.. ég sá alveg til þín þó ég sæti úti í bíl (ekki var mér boðið í partýið!!! ) heheh og þú varst nú allavega búin að fá þér í 8 tær!!

 
 
Blogger Hrafnhildur Says:

hehe, reyndar, reyndar! þá verða gulur og blár grænn ef maður blandar þeim saman...

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic