Blogg dagsins - Sønderborg og Þýskaland
Jæja núna er ég í heimsókn hjá Helgu og Palla í Sønderborg. Kom hingað á fimmtudagskvöldið, skrópaði aðeins í skólanum á föstudaginn.. var svosem ekki að missa af miklu, bara einum tennistíma..
Allavega, þá skoðaði ég mig um hérna á föstudaginn, fór niðrí miðbæ og kíkti á helstu búðir. Í gær skelltum við Helga okkur svo til útlanda! Skruppum semsagt yfir til Þýskalands (Alltaf í útlöndum bara, Svíþjóð í síðustu viku, Þýskaland í þessari..) Fórum til Flensborgar, ekki nema rúmir 40 km á milli Sønderborgar og Flensborgar.. Byrjuðum á því að kíkja aðeins í miðbæinn, vorum hrikalega menningarlegar þar og fengum okkur brezel, djöfulli var það gott, hún kom sko beeeeiiiiint úr ofninum, namminamm. Jæja, svo fórum við í búð sem heitir citti park, smá svona verslunarmiðstöð, RISAraftækjabúð með RISAdvddeild!!! og svo var RISARISARISAmatvöruverslun!! ég hef aldrei séð annað eins!!! Bara áfengisdeildin var eins og allt kaupfélagið á Hvammstanga! Og úrvalið! vávává!! Ég held ég hafi eitt u.þ.b. 40 mínútum í áfengisdeildinni, kom þaðan út með eina tequila flösku, eina rauðvínsflösku og svo kassa með 25 mismunandi skotum, eitthvað þýskt :) Jæja, svo komum við að nammideildinni, hef heldur aldrei séð annað eins! Það var svona næstum því eins og kaupfélagið! Ég fann nottlega fullt þar líka :) samt ekki allt fyrir mig ;)
Það er mjög ódýrt að versla í Þýskalandi, tequila flaskan kostaði einhverjar 10 evrur sem eru 900kr íslenskar, sama flaska kostar á klakanum 3490 kr. Svo keypti ég rauðvínsflösku á 4 evrur eða 350kr, sama flaska kostar heima 1140kr. Svona smá munur!
Jámms... ég semsagt keypti, áfengi, sælgæti, coca cola, 1 dvd mynd, eina seríu af ER á dvd og skrifanlega cd og dvd diska :p hehe
En jæja já, ég fer semsagt aftur í skólan á eftir.. Yfir og út í bili :)
Og hey já, til fróðleiks þá breyttist tíminn í nótt þannig að tímamismunurinn er bara 1 klst.
Hæ hæ, bara smá leiðrétting; rauðvínsflaskan kostaði ekki 4 evrur heldur 3! Rétt skal vera rétt! Munar miklu um heila evru. Kostaði kassinn ekki annars 23 evrur? mig minnir það!
Grrr.... Mig langar til Þýskalands... Að kaupa ódýrt áfengi ;P Verst að það er örugglega eki til Opal þar ;)
ooooooooohhhhhhhhh BREZEL!!!!!!!!!!!!!!! borðaði það á hverjum degi í morgunmat þegar ég var au-pair!!!!!ég ELSKA Brezel...........................geðveikt gott heitt með smjöri...........uuuuuuuuummmmmmmmmmmmmmmmm