<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d18310621\x26blogName\x3dI+am+the+it+girl\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://longlovelust.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://longlovelust.blogspot.com/\x26vt\x3d6952030969409828038', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>

I am the it girl

 

Rugl dagsins - söfnunarárátta

Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum.
Þegar ég skúra í Sparisjóðnum seinnipartinn þá hef ég lítið annað að gera á meðan en að hugsa. Ég á það nú til að ofhugsa hlutina eins og gott dæmi síðan um daginn gefur til kynna.

Þá var ég að hugsa um það ef ég skyldi nú ákveða að fara til danmerkur, hvaða skóla ég ætti að fara í og ef ég kæmist þá inn í skóla þar, hvort ég ætti að taka bílinn með mér. Nú ef ég ákveddi svo að fara til danmerkur, ef ég kæmist í skólan og ef ég ákveddi að taka bílinn með mér, hvað ég ætti þá að taka með mér í bílnum! Jú það yrði hjólið mitt og tölvan, sjónvarpið og sængin... og auðvitað fötin mín. og þá var það nú stóra spurningin hvernig ég ætti að pakka þessu inní bílinn!! Jú það væri auðvitað möguleiki að fá hjólagrind til að hafa utan á bílnum en annars væri sennilega hægt að setja hjólið inní bíl með því að taka framhjólið af og snúa stýrinu! og svo fór ég í framhaldi að þessu að velta því fyrir mér þegar ég kæmi aftur heim, hvort ég ætti að reyna að smygla með mér eðlu eða skjaldböku! lol Þetta kom út frá vangaveltum um það hvort ég ætti að flytja til Danmerkur!

En allavega, í dag þá var ég að velta fyrir mér söfnunaráráttu. Ég hef hingað til ekki talið mig þjást af svoleiðis, á afar auðvelt með að henda og hendi miskunarlaust gömlu drasli! Eeen það eru samt nokkrir hlutir sem ég safna, þeir eiga það allir sameiginlegt að hafa notagildi (tja.. fyrir utan kannski frímerkjasafnið mitt...). Ég á örugglega hátt í 5kg af erlendri smámynt frá öllum heimshornum! Svo á ég nokkur hljóðfæri, fiðlu, gítar, 2 afríska tréfroska (já þeir eru hljóðfæri) spænska flautu, blokkflautu, sópranino flautu og svo var mér að áskotnast þessi líka forláta mini tromma frá suður-Afríku (takk Magga :D). Að vísu á ég ekki þau hljóðfæri sem mig langar helst að eiga, píanó/hljómborð, djembe trommu og stálstrengja gítar. Ég stefni á það að athuga hvort það séu einhvarjar trommur í Dóminíska ;)

Svo á ég líka orðið sæmilegt safn af myndavélum. Á gamla Nikon FM filmuvél sem móðir mín var svo elskuleg að gefa mér í afmælisgjöf, 10 ára gamla Nikon F60 filmuvél, Nikon D70 digital vél, fujifilm f30 litla digital vél, canon filmuvél gamla og svo á ég einhversstaðar drasl filmuvél sem ég fékk í jólagjöf frá Júlíusi þegar ég var ca 10 ára :) Mig langar hinsvegar mikið til að eignast gamla polaroid vél og svo medium format vél. - ef einhver á svoleiðis uppí skáp (eða veit um einhvern sem á) sem er föl (gegn þóknun eða gefins ;) þá má sá hinn sami endilega kasta á mig línu!


Svo er það eitt enn sem mig langar hrikalega í til að svala söfnunaráráttunni. Það er gömul Nintendo NES tölva, þessi allra elsta, gráa, og super mario leikina, ég alveg elskaði super mario 3! og reyndar 1 líka hehehe.

Jæja, þá vitið þið allavega á hverju ég hef áhuga! :p

 

for this post

 
Anonymous Nafnlaus Says:

Hefur einhver sagt þér að þú ert weirdo?? Fyndið weirdo að vísu ;P

 
 
Blogger Helga Hin Says:

Hey! Ég sé hér hina fullkomnu ástæðu til að fara á loppumarkað! Til að finna drasl fyrir þig! Nú þarf ég bara að vita hvernig Polaroid myndavél er og hvernig þessi medium format vél er. Og þá er bara að þræða markaði! Mjög líklegt að þetta sé til í Kirkens Korshær... Og já við söfnum líka hljóðfærum, eigum núna (samanlagt); 3 fiðlur, þýska hörpu, ukulele, skrítna flautu með tveimur götum til að blása í, frosk, einhverja litla trommu, 3 bassa, kassagítar og hljómborð. Held ég sé ekki að gleyma neinu. Já, og ef þú finnur geðveikt mikið af skrítum hljóðfærum sem ekki fer mikið fyrir í Dóminíska - þá hugsarðu kannski til okkar. Jájá, það held ég nú.

 
 
Blogger Hrafnhildur Says:

Já mér lýst vel á að þú fylgist með því á loppumörkuðunum hvort það séu til nothæfar polaroid og medium format vélar ;) Polaroid eru svona sem framkalla sjálfar t.d. svona vél http://candidcamera.free.fr/USABLE%20ITEMS/ui%20polaroid_sx70_autofocus_modele_2_open.jpg
Nú og Medium format eru vélar sem taka ákveðnar týpur af filmum - ferkanta, ég hugsa að svona vélar séu kannski einna algengastar http://gregrob.ca/TLR/YASHICA_800.jpg ;)

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

jamm.. mér er spurn...

froskahljóðfærið - ef það lítur út eins og þessi á myndinni, hvar er blásið í það??

og Helga pelga.. ukulele??? þætti gaman að sjá hvað það er!

Farðu til Danmerkur.. þá er svo stutt að koma í heimsókn... og ef þú ferð á bílnum.. þá er svo helvíti fínt að renna bara til helgu pelgu um helgar... eða er það of langt? hvað veit ég .. bý á íslandi, hugurinn á spáni - stundum...

 
 
Blogger Hrafnhildur Says:

Sko, Sigga, það er ekki blásið í froskinn heldur er prikinu sem er í munninum á honum rennt eftir bakinu og þá heyrist svona eins og froska kvak...

Ukulele er hawaii-iskur gítar, svona míní gítar með 4 strengjum...

Já og ef ég fer á bílnum þá er ekki nema ca klukkutíma akstur til Helgu ;) og ég færi alveg pottþétt í heimsókn um helgar ;)

Og p.s. það er að fara að bætast hljóðfæri í safnið.. var að skoða xaphoon á netinu og stóðst ekki mátið, pantaði mér einn á ebay :D þetta er svona míní saxafónn/klarinett... og kostaði bara klink ;) - www.xaphoon.com

 
 
Blogger Helga Hin Says:

Hahahahaha.... ég las hérna að xaphooninn kostaði bara KLIKK s.s. bara músarklikk! Og mér fannst þetta brilljant afsökun til að kaupa sér eitthvað!

Já, og ég styð líka að þú komir til Danmerkur! Örstutt til Þýskalands. Örstutt-þó-lengra til Póllands, ábyggilega jafn-örstutt-þó-lengra til Hollands og ég veit ekki hvað og hvað! Já, og líka örstutt til Svíþjóðar og Noregs - en það veist þú nú allt um, þú sem hefur HJÓLAÐ þangað!

 
 
Anonymous Nafnlaus Says:

stálstrengjagítar, ertu ekki bara að meina venjulegan þjóðlagagítar?

 

Hvað segir þú?

 
 
free html hit counters
Dicks Sporting Goods Store
web statistic