Blogg dagins - Skuggi
Já jæja, nú er ég búin að ná birtingarhæfum myndum af skugganum. Hann er afspyrnu fyndinn köttur. Áðan var ég að skipta um sand í kassanum hjá honum. Hann hefur verið með grófan glæran sand en sá sandur var búinn þannig að ég setti fínan gráan sand í kassan. Mínum fannst þetta svo hrikalega spennandi og skemmtilegur sandur að hann lék sér í kassanum hálftíma eftir þessi skpiti - og gólfið var eftir því, ALLT útí sandi! Á meðan þessu öllu stóð malaði hann og malaði, svo glaður var hann með nýja sandinn :p
Hann er frekar furðulegur á litinn og eiginlega ekki hægt að segja að hann sé svartur.. Hann er eiginlega grá-svart-brún-bröndóttur! Sést vel á þessari mynd hvað hann er bröndóttur, hann hefði sennielga átt að heita Brandur!
En að öðru, nú fer alveg að líða að því að ég hætti að skúra í sparisjóðnum, mér til mikillar gleði og ánægju, með skiptinu í dag á ég eftir að skúra svo mikið sem 5 sinnum. Á fimmtudaginn bruna ég svo suður með bílinn minn til nýs eiganda og í leiðinni næ ég í Ástuna út á flugvöll :) Við ætlum svo að skella okkur eitthvað austur yfir verslunarmannahelgina :)
Svo vantar mig eiginlega vinnu með skólanum í haust en ég er algjörlega hugmyndasnauð hvað það ætti að vera! Einhverjar hugmyndir? Vantar vinnu einhverntíma eftir hádegi á þriðjudögum og svo aðra hvora helgi.. hmmm...
O so sætur....!!!! :)
sæti kisi..
hvert á skella sér austur?
Ef þú vilt vinna í grillsjoppu í Grafarvogi geturðu tékkað hjá bróður mínum......